Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2011 | 16:00

Hver er kylfingurinn: Momoko Ueda?

Momoko Ueda (á japönsku: 上田 桃子) fæddist 15. júní 1986, í Kumamoto, Japan og er því 25 ára.  Hún varð árið 2007, þá 21 árs, yngsti kylfingurinn í sögu japönsku LPGA (skammst.: JLPGA) mótaraðarinnar  til þess að verða efst á peningalistanum þar í landi. Nú sem stendur spilar Momoko á bandarísku LPGA mótaröðinni. Hún á að baki 2 sigra á bandaríska LPGA og 9 sigra á japanska LPGA.

Momoko Ueda á Evian Masters 2010 - en mótið verður eitt risamóta LPGA, 2013

Áhugamannaferill Momoko

Momoko byrjaði að spila golf 9 ára og fékk inngöngu í hinn virta Sakata skóla 10 ára. Í 23 áhugamannamótum sem hún tók þátt í var hún meðal 10 efstu, 15 sinnum, þ.á.m. vann hún 3 sinnum og var 5 sinnum í 2. sæti.

Atvinnumannsferill Momoko

Momoko gerðist atvinnumaður í ágúst 2005 (þá 19 ára) og vann nýliðabikar JLPGA það árið. Árið 2006 varð hún í 4 sæti í tveimur mótum JLPGA og var T-9 í Mizuno Classic, sem er sameiginlegt mót bandaríska og japanska LPGA.

Momoko Ueda frá Japan eftir sigur á Mizuno Classic 2007

Það var árið 2007, sem Momoko blómstraði á JLPGA, sigraði 5 sinnum, varð 6 sinnum í 2. sæti og var 1 sinni í 3. og 1 sinni í 5. sæti. Hún var fulltrúi Japan í Heimsbikarnum (ens.: World Cup) og spilaði í risamóti kvennagolfsins Women´s British Open í St. Andrews. Í apríl 2007 vann hún the Life Card Ladies í heimabæ sínum, Kumamoto. Hún sigraði líka Resort Trust Ladies og Stanley Ladies og varð í 2. sæti í Fujitsu Ladies áður en hún tók Mizuno Classic mótið í nóvember 2007. Hápunktur mótsins var albatross sem hún fékk og er sá 28. í allri sögu LPGA mótaraðarinnar yfir albatrossa sem fást í mótum. Hún varð fyrsti sigurvegrinn frá Japan í 9 ár og 16. kylfingurinn, sem ekki er á félagi í LPGA til að sigra á LPGA móti. Tveimur vikum síðar á Elleair Ladies vann hún 5. mót sitt það ár í Japan og varð sú yngsta í sögu JLPGA til þess að vera í 1. sæti á peningalistanum það árið.

Momoko Ueda á 2. degi á Mizuno Classic 2011

Sigurinn á Mizuno Classic 2007 varð til þess að hún fékk kortið sitt á bandaríska LPGA 2008. Á fyrsta móti ársins, SBS Open í Turtle Bay varð hún í 5. sæti. Í dag, 6. nóvember 2011 vann hún svo aftur Mizuno Classic mótið, eftir umspil við Shanshen Feng frá Kína, á 3. holu.

Heimild: Wikipedia