Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 30. 2012 | 14:00

Hver er kylfingurinn: Robert Rock?

Ef þið hafið ekki nú þegar verið aðdáendur Robert Rock né vitað hver þessi viðkunnanlegi enski kylfingur er þá vitið þið það í síðasta lagi í gær… þ.e.a.s. ef þið fylgist eitthvað með golfi.

Robert Rock sigraði nefnilega í gær á Abu Dhabi HSBC Golf Championship.  Hér er ætlunin að beina kastljósinu aðeins að sigurvegara gærdagsins í Abu Dhabi.

Robert Rock.

Robert Rock fæddist 6. apríl 1977 í Armitage, nálægt Lichfield í Staffordshire á Englandi. Hann ólst upp og hlaut menntun sína í Rugeley. Hann komst á Evróputúrinn 2003 og hefir spilað á honum síðan.

Rock blómstraði 2009 þegar hann varð þrívegis í 2. sæti þ.á.m. á Opna írska, þar sem hann var T-1 ásamt írska áhugamanninum Shane Lowry, en tapaði síðan fyrir honum í 3 holu umspili. Hann lauk 2009 með því að vera meðal topp-30 á Race to Dubai (peningalista Evrópumótaraðarinnar).

Besti árangur Rock í risamóti er T-7 árangur 2010 á Opna breska.

Fyrsta sigurinn á Evróputúrnum vann Rock á BMW Opna ítalska í Torinó í júní í fyrra (2011). Hann átti 1 högg á Gary Boyd og Thorbjörn Olesen, þó Olesen hafi átt lokarhring upp á 62 högg.

Rock spilaði vikuna þar á eftir í 1 sinn á Opna bandaríska. Vegna vesens á að hljóta vegabréfsáritun til Bandaríkjanna þá kom hann fyrst þangað kl. 3:30 um morguninn á keppnisdaginn, minna en 12 tímum áður en hringur hans átti að byrja. Þrátt fyrir það náði hann að spila undir pari  á 70 höggum fyrsta hringinn og lauk mótinu T-23, á samtals -3 undir pari.

Eins og sagði hér í upphafi sigraði Rock á Abu Dhabi HSBC Golf Championship og átti 1 högg á Rory McIlroy. Hann hóf lokahringinn -11 undir pari og deildi 1. sætinu með Tiger Woods, en tókst að hafa betur en margfaldur risamótatitilhafinn (Tiger) og sigraði með -2 undir pari, hring upp á 70 högg.

Svona á persónulegu nótunum þá mætti geta þess að Rock er 1,78 m á hæð; hann er kvæntur Lyndu og á með henni soninn David, sem fæddist 2008. Loks hefir Rock skrifað golfgreinar á vefsíðuna worldgolf.com.

Heimild: Wikipedia