Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 28. 2012 | 12:45

Hver er kylfingurinn: Suzann Pettersen? (1. grein af 4)

Suzann Pettersen fæddist í Osló, 7. apríl 1981 og er norskur atvinnukylfingur. Hún spilar aðallega á LPGA en er líka á Evrópumótaröð kvenna. Hún hefir best náð þeim árangri að verða í 2. sæti á Rolex-heimslista kvenna.

Áhugamannsferill

Báðir foreldrar Suzann, Axel og Mona eru íþróttamenn. Suzann er fjarskyldur ættingi Gunerius Pettersen (1826-1892).  Hún átti mjög farsælan áhugamannsferil. T.a.m. arð hún í fimm skipti norskur meistari (1996-2000) og sigraði á British Girls Championship árið 1999. Hún var fulltrúi Noregs í Espirito Santo Trophy árin 1998 og 2000 og varð heimsmeistari annað skiptið  sem hún tók þátt. Eins var Suzann fulltrúi Noregs 1997 og 1999 í Junior Ryder Cup.

Atvinnumannsferill

2001

Suzann Pettersen gerðist atvinnumaður í september árið 2000, 19 ára  og fékk kortið sitt á LET (ens.: Ladies European Tour) þ.e. kortið á Evrópumótarööina eftir að hún varð i 11. sæti á Q-school LET 2011.  Á nýliðaári hennar árið 2001, spilaði hún í 10 mótum og komst í öll skipti í gegnum niðurskurð.  Í 2. móti sínu sem atvinnumaður vann Pettersen Open de France Dames í bráðabana við Becky Morgan.  Hún var í 2. sæti á stigalistanum og var valin nýliði ársins 2001.

Heimild: Wikipedia