Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2022 | 20:00

Íslandsmót barna 2022: Elva María Íslandsmeistari í flokki stelpna 12 ára og yngri

Elva María Jónsdóttir, GK, sigraði á Íslandsmótinu í höggleik 2022 í flokki 12 ára og yngri í stúlknaflokki.

Keppt var á Setbergsvelli dagana 11.-13. ágúst, en leiknir voru þrír 9 holu hringir í þessum aldursflokki. Þátttakendur í stelpnaflokki undir 12 ára, sem luku keppni voru 8.

Elva María lék á 133 höggum eða 25 höggum yfir pari, (50-41-42).

Hún var átta höggum á undan næsta keppenda.

María Högnadóttir, GSE, varð önnur á 141 höggi (46-48-47), og Ragna Lára Ragnarsdóttir, GR, varð þriðja á 147 höggum (48-51-48).

Sjá má lokastöðuna í fl. 12 ára og yngri stelpna með því að SMELLA HÉR: