Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 15. 2022 | 19:00

Íslandsmót barna 2022: Hjalti Kristján varð Íslandsmeistari í fl. 12 ára og yngri stráka

Hjalti Kristján Hjaltason, GM, sigraði á Íslandsmótinu í höggleik 2022 í flokki 12 ára og yngri í stákaflokki.

Keppt var á Setbergsvelli 11.-13. ágúst, en leiknir voru þrír 9 holu hringir í þessum aldursflokki.

Þáttakendur, sem luku keppni voru  26.

Hjalti Kristján lék á 112 höggum eða 4 höggum yfir pari, (37-36-39).

Hann var tveimur höggum á undan næsta keppenda.

Björn Breki Halldórsson, GKG, varð annar á 114 höggum (38-39-37), og Halldór Jóhannsson, GK, varð þriðji á 117 höggum (41-39-37).

Sjá má lokastöðuna í flokki 12 ára og yngri stráka með því að SMELLA HÉR: