Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 13. 2017 | 15:00

Íslandsmót golfklúbba 2017: GKG Íslandsmeistarar í 1. deild karla

Íslandsmót golfklúbba 2017 hófst föstudaginn 11. ágúst og keppni lauk í dag, sunnudaginn 13. ágúst.

Keppt var í fjórum deildum í karlaflokki og tveimur deildum í kvennaflokki.

GKG fagnaði sigri í  1. deild karla.

Þetta er í fimmta sinn sem GKG fagnar sigri á Íslandsmóti golfklúbba.

Leikið var á Kiðjabergsvelli og fór sveit GKG ósigruð í gegnum mótið.

Sigursveit GKG skipuðu:  Aron Snær Júlíusson; Daníel Hilmarsson; Egill Ragnar Gunnarsson; Haukur Már Ólafsson;
Jón Gunnarsson; Ólafur Björn Loftsson; Ragnar Már Garðarsson;Sigurður Arnar Garðarsson.
Liðsstjóri/þjálfari: Derrick Moore