Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 22. 2021 | 09:07

Íslandsmót golfklúbba 2021: Golfklúbburinn Esja Íslandsmeistari karla 50+ í 2. deild

„Íslandsmót golfklúbba í 2 deild karla +50 ára flokki fór fram á Vestmannaeyjavelli hjá Golfklúbbi Vestmannaeyja dagana 19.-21. ágúst.2

Golfklúbburinn Esja og Nesklúbburinn léku til úrslita um sæti í 1. deild. Þar hafði Esja betur.“ Esja spilar því í 1. deild að ári!

„Golfklúbbur Sandgerðis hafði betur gegn Golfklúbbnum Leyni í keppni um þriðja sætið.“

Íslandsmeistarasveit Golfklúbbsins Esju var svo skipuð: Helgi Anton Eiríksson, Guðlaugur Rafnsson,Ragnar Þór Ragnarsson ,Þorsteinn Sverrisson, Eiríkur Guðmundsson Gunnar Már Sigurfinnsson  og Páll Ingólfsson.
Liðsstjóri: Magnús Lárusson

Golf 1 óskar Golfklúbbnum Esju innilega til hamingju með Íslandsmeistaratitilinn!!!

Mynd og texti (innan gæsalappa): GSÍ. Á mynd fv:  Magnús Lárusson, Þorsteinn Sverrisson, Helgi Anton Eiríksson, Ragnar Þór Ragnarsson, Guðlaugur Rafnsson, Gunnar Már Sigurfinnsson, Páll Ingólfsson, Eiríkur Guðmundsson.