Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 25. 2024 | 08:00

LEK: GK Íslandsmeistarar karla 65+

Karlasveit Keilis 65+ varð Íslandsmeistari þann 14. ágúst sl.

Sveit GK vann sveit GKG í úrslitaleik 3,5-1,5.

Leikið var á Öndverðarnesinu og tóku átta lið þátt.

Sveit Keilis var þannig skipuð: Tryggvi Þór Tryggvason, Sigurður Aðalsteinsson, Kristján V. Kristjánsson, Kristinn Þórir Kristjánsson, Jóhannes Pálmi Hinriksson og Páll Ingólfsson.

Hafþór Kristjánsson var spilandi liðsstjóri.