Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2024 | 12:00

Íslandsmót golfklúbba 2024: GR Íslandsmeistari í 1. deild karla 50+

Íslandsmót golfklúbba 2024 í 1. deild karla 50 ára og eldri fór fram á Þorláksvelli í Þorlákshöfn 23.-25. ágúst 2024 og lauk því í dag.

Klúbbarnir sem tóku þátt voru:

GSE, Golfklúbbur Setbergs
GR, Golfklúbbur Reykjavíkur
GKG, Golfklúbbur Kópavogs – og Garðabæjar
GO, Golfklúbburinn Oddur

GA, Golfklúbbur Akureyrar
GE, Golfklúbburinn Esja, Kjalarnes
GK, Golfklúbburinn Keilir Hafnarfjörður
GS, Golfklúbbur Suðurnesja

Íslandsmeistari golfklúbba 2024 í 1. deild karla 50+ er sveit GR, eftir að hafa sigrað sveit GKG 3-2 í úrslitaviðureignum.

Íslandsmeistarasveit GR í 1. deild karla 50+ 2024 skipuðu þeir: Hannes Eyvindarson, Einar Long, Jón Karlsson, Guðmundur Arason, Hallsteinn Traustason, Sigurður Fannar Guðmundsson, Jón Kristbjörn Jónsson og Magnús Bjarnason.

Liðsstjóri var: Jón Karlsson.

Sjá má lokastöðuna í 1. deild karla 50+ á Íslandsmóti golfklúbba 2024 með því að SMELLA HÉR: