Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 26. 2024 | 23:40

Íslandsmót golfklúbba: GA Íslandsmeistari í 2. deild kvenna

Íslandsmót golfklúbba í 2. deild kvenna 2024 fór fram á Selsvelli á Flúðum 24.-26. júlí.

Alls tóku sjö klúbbar þátt og efsta liðið fór upp í 1. deild.

Golfklúbbur Akureyrar og Nesklúbburinn léku til úrslita um sigurinn, þar sem að GA hafði betur 2,5-0,5. GA vann allar fjórar viðureignir sínar nokkuð örugglega.

Íslandsmeistaralið GA í 2. deild kvenna var skipað þeim: Andreu Ýr Ásmundsdóttur; Lilju Maren JónsdótturKöru Líf AntonsdótturBjörk Hannesdóttur og Bryndísi Evu Ágústsdóttur. Liðsstjóri var  Ólafur Auðunn Gylfason.

Sjá má öll úrslit í 2. deild kvenna með því að SMELLA HÉR: 

Lokastaðan:
1. Golfklúbbur Akureyrar, GA
2. Nesklúbburinn, NK
3. Golfklúbburinn Setberg, GSE
4. Golfklúbburinn Leynir, GL
5. Golfklúbbur Fjallabyggðar, GFB
6. Golfklúbbur Grindavíkur, GG
7. Golfklúbburinn Esja, GE

A-riðill:
Nesklúbburinn 6 sigrar
Golfklúbburinn Leynir  2 sigrar
Golfklúbbur Grindavíkur 1 sigur

B-riðill
Golfklúbbur Akureyrar 8 sigrar
Golfklúbbur Fjallabyggðar  3,5 sigur
Golfklúbburinn Esja enginn sigur
Golfklúbburinn Setberg 4,5 sigrar

Texti og mynd: GSÍ