Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 9. 2012 | 20:45

Íslandsmót unglinga í holukeppni: Atli Már Grétarsson – Íslandsmeistari í strákaflokki 2012

Það er Atli Már Grétarsson, GK, sem er nýr Íslandsmeistari í holukeppni í strákaflokki 2012. Hann vann Fannar Inga Steingrímsson, GHG,  í úrslitum á 19. holu í bráðabana. Fannar Ingi hlaut því 2. sætið á Íslandsmótinu í holukeppni.

Atli Már, Íslandsmeistari var þar áður búinn að sigra Eggert Kristján Kristmundsson, GR 3/2, í fjögurra manna úrslitunum og  Fannar Ingi var þar áður búinn að vinna Henning Darra Þórðarson, GK, 2/0 í  fjögurra manna úrslitunum.

Það voru því Henning Darri og Eggert Kristján sem mættust í leik um 3. sætið.  Henning Darri hafði betur í viðureigninni gegn Eggert Kristjáni 2/0 og hlaut því þriðja sætið.