Jenetta Bárðardóttir
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2024 | 07:00

Jenetta Bárðardóttir látin

Jenetta Bárðardóttir andaðist 23. ágúst sl.

Hún var fædd 12. maí 1949 í Ólafsvík og því 75 ára þegar hún lést.

Jenetta lætur eftir sig eiginmann, Benóný Ólafsson, börn og barnabörn.

Jenetta var í GR og GKB og m.a. klúbbmeistari kvenna í GKB 2012. Hún hafði öðlast réttindi til að kenna SNAG golf.

Sjá má eldra viðtal Golf 1 við Jenettu með því að SMELLA HÉR: 

Golf 1 vottar eiginmanni, fjölskyldu, öðrum aðstandendum og vinum Jenettu innilega samúð.