Ragnheiður Jónsdóttir | janúar. 3. 2012 | 08:30

Jim Huber golffréttaskýrandi hjá Turner Sports látinn – 67 ára

Jim Huber, golffréttaskýrandi hjá Turner Sports, lést í gær, mánudaginn 2. janúar 2012,  í Atlanta, Georgíu. Hann var 67 ára.

Kapalsjónvarpsfréttastöðin sagði að ekkert hefði verið gefið upp um dánarorsök.

Í fréttatilkynningu frá  Turner Broadcasting System, Inc., sagði að Jim Huber hefði unnið til Emmy verðlauna fyrir ritgerðir sínar og hefði komið í fullt starf hjá  Turner Sports árið 2000 og verið golffréttaskýrandi, sem lýsti mörgu móti atvinnukylfinga, sem og NBA leikjum.

Jim Huber vann áður sem þulur og fréttamaður hjá CNN/Sports Illustrated og þáttastjórnandi í Pro Golf Weekly hjá CNN og Sporting Life with Jim Huber.

David Levy, forseti sölu, dreifingar og íþróttamála hjá Turner sagði í fréttatilkynningu að alls hefði Jim Huber starfað í 27 ár hjá fyrirtækinu. Í tilkynningunni saagði m.a.: „Turner Broadcasting fjölskyldan hefir orðið fyrir miklum missi og við erum sorgmædd yfir andláti starfsfélaga okkar og vinar.“

Heimild: ESPN Sports