Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR. Mynd: Golf 1
Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 18. 2019 | 19:30

Jóhanna Lea fékk ás

Jóhanna Lea Lúðvíksdóttir, GR, Íslandsmeistari í höggleik í flokki 17-18 ára stúlkna gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á Íslandsmótinu.

Ásinn kom á 2. keppnisdag á Íslandsmótinu á par-3 13. brautinni í Grafarholtinu.

Brautin er 124 m löng.

Jóhanna Lea lauk 2. hring á 3 yfir pari, 74 höggum – en Íslandsmeistaraskorið var samtals 12 yfir pari, 225 högg (78 74 73).

Golf 1 óskar Jóhönnu Leu innilega til hamingju með ásinn og Íslandsmeistaratitilinn!!!