Keegan Bradley sigurvegari PGA Championship
Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 24. 2011 | 10:15

Jólagjöf/(sveifluráð) frá nýliða ársins á PGA – Keegan Bradley

Keegan Bradley nýliði ársins á PGA 2011 og sigurvegari á einu risamóti golfsins í ár, PGA Champion árið 2011, gefur okkur jólagjöf í formi sveifluráðs.  Það (ráðið) birtist ásamt öðrum í janúarhefti Golf Digest 2012, en Keegan er einmitt á forsiðu blaðsins. 

 

Þetta er sem hér fylgir er aðeins lítill hluti stærri greinar um járnaspil, þar sem Keegan sýnir okkur ráð sem hann lærði af kennara sínum Jim McLean. Þessi æfing hjálpar sveifluferli hans. Þetta er nokkuð sem hægt er að æfa án bolta, niðrí kjallara eða úti í bílskúr eða hvar sem er innandyra þar sem er nægilegt pláss, (og helst spegill) í allan vetur.  Gefum Keegan orðið: 

MEiSTARAÆFINGIN
„Jim og ég höfum varið stórum hluta golftímanna sem ég er í til þess að vinna í sveifluferli mínum, sem var svo mikið fyrir innan (rétts sveifluferils) að ég varð að taka slaufu (loop) út, þegar ég fór niður í sveiflunni. Nú sveifla ég kylfunni aftur og niður á ferli sem er réttur miðað við skotmark mitt og þegar kylfuflöturinn snertir golfboltann er ég beint á sveifluferlinum.

keegan.gif

Til þess að innprenta mér réttan sveifluferil, sem er nauðsynlegur til þess að höggið verði kraftmikið og undir stjórn, lætur Jim mig alltaf stinga kylfu-coverinu undir handarkrikann og segir mér að reyna að halda því þar eins lengi og ég get meðan ég sveifla. Það dettur niður en ekki fyrr en löngu eftir höggið.
Til viðbótar því að bæta sveifluferilinn gefur þessi æfing ykkur góða tilfinningu fyrir samspils kylfu, handa, handleggja og líkama þegar sveiflað er. Allt verður að vera í „sync-i“ eða kylfu-cover-ið dettur.“