Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 4. 2021 | 18:00

Jon Rahm orðinn pabbi!

Jon Rahm er orðinn pabbi!

Atvinnukylfingurinn, 26 ára og eiginkona hans, Kelley Cahill fögnuðu í gær fæðingu fyrsta barns síns, stráks, sem þegar hefir fengið nafnið Kepa Cahill.

Jon Rahm tilkynnti um fæðingu sonar síns á Instagram og fylgdi tilkynningunni ljósmyndir af foreldrunum nýbökuðu ásamt syni sínum (sjá aðalmyndaglugga).

Orðrétt sagði í fréttatilkynningunni frá Rahm (bæði á ensku og spænsku):

Kepa Cahill Rahm, was born 4/3/21 at 12:15am. Momma Kelley is doing great and recovering. Kepa is also in great health. He is 7.2 lb and 20.5inch, big boy from the Basque Country.“

„Without a doubt the greatest day of my life!“

(Lausleg þýðing: Kepa Cahill Rahm fæddist 3. apríl 2021 kortér yfir miðnætti. Mamman, Kelly hefur það fínt og er að jafna sig. Kepa er líka við fína heilsu. Hann er 7.2 punda og 20,5 þumlunga stór strákur frá Baskalandi.“

„Þetta er án efa mesti gleðidagur lífs míns!“)

Nýbökuðu foreldrunum bárust margar hamingjuóskir m.a. frá atvinnukylfingunum Rickie Fowler, Maurice Allen, Brodie Smith, Tom Detry og fleirum. Fyrrum „Bachelor“-inn Ben Higgins var einnig meðal þeirra sem óskaði Jon og Kelley Rahm til hamingju með frumburðinn.