Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 7. 2019 | 12:00

Kærasta Jon Rahm m/fullkomið kast í bandaríska fótboltanum

Eiginkonur og kærustur atvinnukylfinganna á PGA Tour vekja oft athygli við hlið eiginmanna/kærasta sökum glæsileika eða einhverra hæfileika sem þær hafa.

T.a.m. var fv. kærasta Tiger, Lindsey Vonn, einn besti skíðamaður Bandaríkjanna, sem m.a. keppti á Vetrarólympíuleikunum.

Kærasta Jon Rahm, Kelley Cahill vakti nú á dögunum athygli á sér fyrir kast í bandaríska fótboltanum á NFL Scouting Combine í Indianapolis, þar sem leitað er að nýju hæfileikafólki í bandaríska fótboltanum.

Cahill er þríþrautaríþróttakona úr Arizona State, sem einnig keppti í boxi, tennis og stangarstökki.

Cahill átti hið fullkomna kast og stoltur Rahm birti myndskeið af kærustunni ásamt því sem hann skrifaði að það ætti að koma þeim á samning!

Hér má sjá myndskeið af kasti Kelley Cahill SMELLIÐ HÉR: