Allison fagnar Rickie Fowler eftir sigur hans á WM Phoenix Open 2019
Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 5. 2019 | 07:00

Kærasta Rickie Fowler: Allison Stokke

Rickie Fowler nældi sér í 5. PGA Tour sigur sinn á dramatískan hátt sl. sunnudag á Waste Management Phoenix Open.

Þrátt fyrir upp og niður lokahring, þar sem allar tölur milli 2 og 8 sáust á skorkorti Rickie þá var afar sérstök manneskja í lífi hans, sem samfagnaði sigrinum með honum á 18. holu … kærasta hans Allison Stokke.

Rickie og Allison trúlofuðust fyrir Opna bandaríska 2018 og hafa verið óaðskiljanleg síðan.

Rickie Fowler trúlofaðist Allison Stokke 2018

Ef Stokke nafnið hljómar kunnuglega þá er það vegna þess að Allison varð þekkt  yfir nótt í Bandaríkjunum 2008 eftir að myndir af henni í stangarstökki birtust á internetinu, 2008.

Hún var All-American í University of Californía, en hefir ekki náð að komast í bandaríska Ólympíuliðið.

Hins vegar er Allison Stokke, kærasta Rickie, með meira en 500.000 fylgjendur á Instagram og það er auðvelt að sjá af hverju.

Hér má sjá nokkrar myndir af Allison Stokke, kærustu Rickie Fowler:

Fræg á 1 nóttu vegna stangarstökksmynda – Allison Stokke, kærasta Rickie Fowler

Allison Stokke í stangarstökki

 

Allison Stokke og Rickie Fowler opinbera samband sitt!

 

 

Alison og Rickie á Erin Hills í Hartfort, Wisconsin 14. júní 2017

Rickie og Allison á Masters 2018