Ragnheiður Jónsdóttir | október. 25. 2018 | 18:30

Keilir í 19. sæti e. 1. dag á EM klúbbliða

Golfklúbburinn Keilir keppir á Evrópumóti félagsliða í Frakklandi dagana 25.-27. okt.

Keilir vann sér inn réttinn til að keppa á mótinu með því að sigra á Íslandsmóti klúbbliða á Akranesi sl. sumar.

Lið Keilisí Frakklandi er skipað þeim Henning Darra Þórðarsyni, Benedikt Sveinssyni og Helga Snæ Björgvinssyni. Liðstjóri er Karl Ómar Karlsson.

Tuttugu og sex lið eru með í keppninni í ár frá allri Evrópu og er lið Keilis í 19. sæti eftir 1. dag

Hægt er að fylgjast með skori karlaliðs Keilis með því að SMELLA HÉR: