Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2019 | 23:59

KFT: Baker leiðir í hálfleik

Það er bandaríski kylfingurinn Chris Baker sem er í forystu á Korn Ferry Championship á Korn Ferry Tour (skammst.: KFT).

Baker er búinn að spila á samtals 12 undir pari, 132 höggum (63 69).

Öðru sætinu deila bandaríski kylfingurinn Lanto Griffin og enski kylfingurinn Tom Lewis á samtals 10 undir pari, hvor.

Fjórða sætinu deila síðan bandarísku kylfingarnir Joseph Bramlett og Kramer Hickok á samtals 9 undir pari, hvor.

Korn Ferry Championship er hluti Korn Ferry Tour Finals en 25 efstu í þeirri mótaröð hljóta kortin sín á sjálfri PGA Tour.

Til þess að sjá stöðuna á Korn Ferry Championship SMELLIÐ HÉR: