Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 29. 2011 | 21:00

Kylfingar 19. aldar: nr. 28 – John Fredrick Abercrombie

John Fredrick Abercromby fæddist árið 1861 í Felixstowe og dó 1935 í Addington, Surrey. Hann var breskur golfvallar- arkitekt, uppi á gullöld golfvallararkítektúrsins.
John var læknasonur og fékk frá unga aldri að leika sér í golfi. Hann varð fljótt „scratch-kylfingur“ (þ.e. með fgj. 0) og tók með góðum árangri þátt í mótum í kringum London. „Aber“, en svo var uppnefni hans, tilheyrði hópi áhugakylfinga sem tókst að fá Willie Park yngri, sem meðlim í golfklúbb þeirra,  Huntercombe, en staðurinn var mikilvægt upphaf í þróun byggingarlistar í golfi.
Um aldamótin 1900 var John Fredrick ráðinn ritri af fjárfesti sem bað hann nokkrum árum síðar að hanna og byggja golfvellina Sunningdale, Walton Heath og Woking.
Þar sem Aber hafði enga praktíska reynslu af golfvallarbyggingum þáði hann í upphafi ráð frá Willie Park yngri. Síðar tók hann þó alla ábyrgð t.d. á byggingu heiðargolfvallarins Worplesdon, sem opnaði 1908. Orðspor hans breiddist út og hann fékk annan stóran samning um byggingu golfvalar (Coombe Hill, 1909), en við byggingu þess vallar fór Aber m.a. upp í loftbelg til þess að finna bestu leguna, í gegnum skóginn fyrir golfvöllinn sinn.  Þar með varð hann líkleg sá fyrsti til þess að skoða verkefni sitt að ofan, það sem nú er eins og hver önnur rútína golfvallarhönnuða.

The Addington - Klúbbhúsið

Í kjölfarið hannaði hann og byggði, líkt og Willie Park yngri fyrr í Huntercombe, The Addington (1912), sem í dag telst meðal bestu verka hans.  Í mörg ár var hann einskonar einræðisgóðgerðarherra staðarins og endurnýjaði hann árlega. Síðan bætti hann við öðrum velli, The New Course, sem ekki er lengur til í dag.
Eftir 1. heimstyrjöldina hóf Aber samtarf með Herbert Fowler og Tom Simpson, en aðeins Knole Park (1924), gamli völlurinn í Bovey Castle (1926) og Mill Hill (1927) má örugglega telja til verka hans. Golfvallarhönnun Abercrombie  hafði tölverð áhrif.