Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 29. 2024 | 18:00

LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu

Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR eru meðal keppenda á LET Access móti sem fram fer 30. ágúst – 1. september 2024 og ber heitið „Get Golfing Womens Championship.“ Mótið hefst því á morgun.

Mótsstaður er The Club Mill Green, sem er á milli bæjanna Hatfield og Welwyn Garden, City í Hertfordskíri, Englandi.

Leiknir verða þrír 18 holu hringir á þremur keppnisdögum. Niðurskurður er eftir 2. keppnisdag.

Þetta er áttunda mótið hjá Ragnhildi á þessu tímabili en hún er í sæti nr. 72 á stigalistanum – Sjá með því að SMELLA HÉR: Guðrún Brá er að leika á sínu áttunda móti á tímabilinu en hún er í sæti nr. 54. á stigalistanum – Sjá með því að SMELLA HÉR: :

Fylgjast má með gengi þeirra beggja með því að SMELLA HÉR: 

(Fram til morguns er engin skortafla og aðeins birt skráningarlistinn fram að því að mótið hefst)