Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 31. 2024 | 17:30

LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni

Þær Guðrún Brá Björgvinsdóttir, GK og Ragnhildur Kristinsdóttir, GR, tóku báðar þátt í LET Access móti vikunnar, Get Golfing Women´s Championship.

Mótsstaður er The Club Mill Green, sem er á milli bæjanna Hatfield og Welwyn Garden, City í Hertfordskíri, Englandi.

Staðan þegar þetta er ritað kl. 16:30 að íslenskum tíma er sú að Ragnhildur er úr leik; spilaði á 6 yfir pari, 150 höggum (74 76) og munaði aðeins 1 sárgrætilegu höggi að hún kæmist gegnum niðurskurð.

Guðrún Brá er enn út á velli á 6 holur óspilaðar og er sem stendur í 24. sæti.

Fylgjast má með Guðrúnu Brá á skortöflu á Get Golfing Women’s Championship með því að SMELLA HÉR: 

Uppfært: Guðrún Brá hefir nú lokið leik lék á samtals 5 yfir pari, 149 höggum (70 79) og rétt náði niðurskurði, sem miðaður var við samtals 5 yfir pari.