Ragnheiður Jónsdóttir | október. 7. 2011 | 10:30

LET: Belen Mozo byrjar vel á Sikiley

Hin spænska Belen Mozo tók forystuna snemma á Opna sikileyska (ens.: Sicilian Ladies Italian Open ) undir heiðbláum himni Il Picciolo Golf Club núna í morgun.

Þessi 23 ára stúlka frá Cadiz, sem var meistari British Amateur fékk fugla á fyrstu 3 holunum og náði 1 höggs forystu fram yfir Rebeccu Hudson, sem er slöpp í bakinu, en var að öðru leyti í góðu formi því hún setti niður fugla á 4. og 6. holu.

Hæst rankaði ítalski kylfingurinn, Giulia Sergas frá Trieste byrjaði líka vel með fugl á fyrstu og það sama er að segja um ítölsku stúlkurnar  Sophie Sandolo og Stefania Croce,  Lee-Anne Pace frá Suður-Afríku og  Garrett Phillips frá Bandaríkjunum.

Klara Spilkova, Laura Diaz, Beth Allen og Florentyna Parker voru meðal þeirra, sem áttu sólíd byrjun, byrjuðu á parinu.

Melissa Reid var hins vegar +1 yfir pari snemma og það sama er að segja um sigurvegara Lacoste Ladies Open de France í síðustu viku, Felicity Johnson og Becky Brewerton frá Wales.

Hin bandaríska Christina Kim er hinn Solheim Cup kylfingurinn í mótinu og fer út kl. 12:05, í dag. Hún spilar með löndu sinni  Kim Welch, sem komst inn í mótið þegar hin ítalska Diana Luna dró sig úr keppni af persónulegum ástæðum, og Virginie Lagoutte-Clement frá Frakklandi.

Sjá má stöðuna á mótinu eftir 1. dag með því að smella HÉR: