Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 26. 2019 | 08:00

LET: Booth sigraði í Tékklandi

Það var skoski kylfingurinn Carly Booth, sem stóð uppi sem sigurvegari í KarlŠtejn, í Tékklandi þar sem mót vikunnar á LET, Tipsport Czech Ladies Open fór fram.

Sigurskor Booth var samtals 9 undir pari, 207 högg (68 69 70).

Sjá má eldri kynningu Golf 1 á Booth með því að SMELLA HÉR: 

Mótið fór, eins og segir, fram í KarlŠtejn, Tékklandi, dagana 23.-25. ágúst 2019 og var skorið niður eftir 2 daga.

Guðrún Brá Björgvinsdóttir var meðal keppenda, en hún komst ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni.

Sjá má öll úrslit á Tipsport Czech Ladies Open með því að SMELLA HÉR: