Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 3. 2019 | 10:00

LET: Cheyenne Woods m/ás í Dubaí!!!

Cheyenne Woods fór holu í höggi á lokahring Omega Dubai Moonlight Classic á Faldo vellinum.

Cheyenne notaði 6-járn og fjarlægðin að holu er 169 yardar.

Þetta er 1. ásin í mótinu, sem Valdís Þóra „okkar“ Jónsdóttir, GL er einnig þátttakandi í.

Glæsileg verðlaun eru fyrir ása í mótinu.

Enn er hægt að fara holu í höggi á 8. (en þar er Omega glæsiúr í verðlaun) og fyrir að fá ás á 17. á Faldo vellinum er BMW Z4 í verðlaun!

Til hamingju Cheyenne með ásinn glæsilega!!!