Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 6. 2020 | 22:00

LET: Minjee Lee sigraði í Dubai

Það var hin ástralska Minjee Lee, sem sigraði á móti vikunnar á LET, Omega Dubai Moonlight Classic.

Mótið fór fram á Faldo vellinum í Emirates golfklúbbnum, dagana 4.-6. nóvember og lauk því í dag.

Minjee var efst og jöfn ásamt hinni frönsku Celine Boutier að loknum hefðbundnum 3 hringjum, báðar á samtals 10 undir pari, hvor og varð því að koma til bráðabana milli þeirra.

18. holan var spiluð aftur og þar tryggði Minjee sér sigur

Sjá má lokastöðuna á Omega Dubai Moonlight Classic með því að SMELLA HÉR: