Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 9. 2019 | 07:00

LET: Valdís Þóra T-3 e. 3. dag NSW Open

Valdís Þóra Jónsdóttir, GL og LET er T-3 eftir 3. hring NSW Open.

Hún lék 3. hring á sléttu pari, 72 höggum – fékk

Samtals hefir Valdís Þóra því leikið á 8 undir pari, 205 höggum (63 70 72), líkt og Karolin Lampert frá Þýskalandi og Christine Wolf frá Austurríki.

Í efsta sæti eru nú Megan MacLaren, frá Englandi, sem á titil að verja og Lynn Carlsson frá Svíþjóð, en báðar hafa spilað á samtals 10 undir pari.

Spennandi lokahringur er framundan í kvöld!

Sjá má stöðuna á NSW Open með því að SMELLA HÉR: