Alheimslögmál golfsins
Alheimslögmál golfsins (ens.: Cosmic laws of golf)
Lögmál nr. 1: Það skiptir ekki máli hversu slæmt síðasta högg þitt var, þú átt eftir að sjá það verra. Þetta lögmál hverfur ekkert á 18. holu, þar sem það hefir þá yfirnáttúrulega tilhneigingu til þess að eiga við um heilt mót, heilt sumar eða jafnvel heila ævi.
Lögmál nr. 2: Á eftir besta golfhring þínum áttu versta golfhringinn þinn. Líkindi á því síðarnefnda aukast eftir því sem þú segir fleirum frá því fyrrnefnda.
Lögmál nr. 3: Glænýir golfboltar virðast vera með vatnshindranasegul. Jafnvel þó ekki sé hægt að sanna þetta á rannsóknarstofu, þá er það þekkt staðreynd að þeim mun dýrari sem golfboltinn er, þeim mun meiri líkur er á að hann lendi í vatnshindrun.
Lögmál nr 4.: Golfboltar skoppa sjaldnast af trjám og aftur í leik. Ef einn undantekningarboltinn gerir það, þá brýtur tréð alheimslögmál og það ætti að höggva það niður.
Lögmál nr. 5: Sama hvað gerðist hjá kylfingi sem slær misheppnað högg, þá verða spilafélagar hans að segja „Þú leist upp“ eða skapa sér reiði alheimsins.
Lögmál nr.6: Þeim mun hærri sem forgjöf kylfings er þeim mun hæfari telur hann sig vera að veita leiðbeiningar.
Lögmál nr. 7: Allar par-3 holur heimsins hafa þá leyndu þrá að auðmýkja kylfinginn. Þeim mun styttri sem holan er, þeim mun heitari er þráin.
Lögmál nr. 8: Að toppa 3-járn er sársaukafyllsta pynting sem vitað er um.
Lögmál nr. 9: Pálmatré éta golfbolta.
Lögmál nr. 10: Sandurinn er lifandi. Ef hann væri það ekki, hvernig er þá hægt að skýra það hvernig hann vinnur gegn þér?
Lögmál nr. 11: Golfbílar verða alltaf rafmagnslausir á punkti fjærst frá klúbbhúsinu.
Lögmál nr. 12: Kylfingur sem slær á hóp þinn mun alltaf vera „stærra númer“ en einhver í ráshóp þínum. Á sama hátt, samanstendur ráshópur á undan þínum, sem þú slærð af slysni á yfirleitt af fótboltakappa, atvinnuglímukappa, dæmdum morðingja og einhverjum sem vinnur á skattstofunni – eða einhverri svipaðri samsetningu!
Lögmál nr. 13: Öll 3-tré eru haldin illum öndum.
Lögmál nr. 14: Golfboltar úr sama pakka virðast elta hvern annan, sérstaklega utan vallarmarka eða í vatnshindrun (sjá lögmál 3)
Lögmál nr. 15: Alvarleg slæs eru bæði hrikalega kraftmikil og falleg.
Lögmál nr. 16: „Góð tilraun“ má yfirleitt þýða með „slæmt pútt.“ Á sama hátt þýðir „erfitt brot!“ yfirleitt „misstir létt pútt, hálfvitinn þinn.“
Lögmál nr. 17: Sá sem þú myndir síst vilja tapa fyrir á golfvellinum virðist alltaf vera sá sem vinnur þig.
Lögmál nr. 18: Síðustu 3 holurnar á vellinum ráða úrslitum um hvert endanlegt skor þitt verður.
Lögmál nr.19: Hótanir um að hætta í golfi koma a.m.k. 2 í mánuði (svona getur golfið verið pirrandi stundum!)
Lögmál nr. 20: Allar hótanir eða loforð gefin á golfvelli gilda bara til sólseturs sama dag.
- ágúst. 31. 2024 | 20:00 Golfgrín á laugardegi (8/2024)
- ágúst. 31. 2024 | 17:30 LET Access: Ragnhildur úr leik – Guðrún Brá enn við keppni
- ágúst. 31. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Elías Kristjánsson – 31. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Amanda Moltke-Leth – 30. ágúst 2024
- ágúst. 30. 2024 | 05:52 Íslandsmót golfklúbba: Golfklúbbur Fjallabyggðar Íslandsmeistari í 3. deild karla
- ágúst. 30. 2024 | 05:30 Unglingamótaröðin 2024: Eva Íslandsmeistari í holukeppni í fl. 17-18 ára stúlkna
- ágúst. 29. 2024 | 23:00 Áskorendamótaröð Evrópu ´24: 4 íslenskir kylfingar meðal keppenda í Konopiska
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 Unglingamótaröðin 2024: Veigar Heiðarsson Íslandsmeistari í holukeppni í piltafl.17-18 ára
- ágúst. 29. 2024 | 18:00 LET Access: Guðrún Brá og Ragnhildur meðal keppenda á Get Golfing Womens meistara- mótinu
- ágúst. 29. 2024 | 17:00 Hjördís fór holu í höggi!
- ágúst. 29. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingar dagsins: Sigríður Anna Kristinsdóttir og Aron Atli Bergmann Valtýsson 29. ágúst 2024
- ágúst. 28. 2024 | 21:00 GFH: Þorbjörg og Kjartan Ágúst klúbbmeistarar 2024
- ágúst. 28. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Lee McLeod Janzen —– 28. ágúst 2024
- ágúst. 27. 2024 | 18:00 PGA: Bradley sigraði á BMW meistaramótinu
- ágúst. 27. 2024 | 16:00 Afmæliskylfingur dagsins: Aldís Ósk Unnarsdóttir – 27. ágúst 2024