Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 7. 2019 | 10:30

LPGA: 4 í forystu á Thornberry e. 3. dag

Það eru 4 sem deila efsta sætinu á Thornberry Creek LPGA Classic fyrir lokahringinn en það eru: Sung Hyun Park, Ariya Jutanugarn, Tiffany Joh og Shanshan Feng, sem allar hafa spilað á 20 undir pari.

Lokarhringurinn verður spilaður í dag og ekki ólíklegt að einhver af fjórmenningunum hér að ofan standi uppi sem sigurvegari í mótinu!

Ólafía Þórunn „okkar“ Kristinsdóttir, GR, tók þátt í mótinu, en komst ekki í gegnum niðurskurð að þessu sinni.

Sjá má hápunkta 3. dags á Thornberry Creek LPGA Classic með því að SMELLA HÉR: 

Sjá má stöðuna að öðru leyti á Thornberry Creek LPGA Classic með því að SMELLA HÉR: