Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2019 | 17:00

LPGA: Amy Yang sigraði á Honda Classic

Amy Yang frá S-Kóreu vann sinn 3. titil á Honda LPGA Classic mótinu sem fram fór í Chonburi, Thaílandi, dagana 21.-24. febrúar 2019.

Yang lék á samtals 22 undir pari, 266 höggum (69 – 66 – 66 – 65).

Í 2. sæti aðeins 1 höggi á eftir varð hin ástralska Minjee Lee á samtals 21 undir pari, 267 höggum (65 – 69 – 67 – 66).

Spænski Solheim Cup kylfingurinn Carlota Ciganda átti þrumulokahring og lauk keppni í 3. sæti á samtals 20 undir pari, 268 höggum (70 – 67 – 68 – 63).

Til þess að sjá lokastöðuna á Honda LPGA Classic í heild SMELLIÐ HÉR: