Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 23. 2014 | 10:00

LPGA: Anna Nordqvist sigraði í Thaílandi

Sænski kylfingurinn Anna Nordqvist, sigraði á Pattaya Old Course, í Siam Country Club, í Chonburi Thailandi, á Honda LPGA Thailand mótinu.

Hún var með 4 högga forystu á næstu keppninauta sína þær Michelle Wie og Inbee Park, og eflaust óþægilegt að vera með þær á hælunum.

Nordqvist hélt þó haus og vann með 2 högga mun á þá sem varð í 2. sæti nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Inbee Park.

Nordqvist lék samtals á 15 undir pari, 273 (66 72 67 68) meðan Inbee var á samtals 13 undir pari, 275 höggum (71 71 67 66).

Í 3. sæti varð skoska golfdrottningin Catriona Matthews á samtals 11 undir pari og í 4. sæti varð Michelle Wie á samtals 10 undir pari.

Fimmta sætinu á samtals 9 undir pari, hver deildu 5 kylfingar: Lexi Thompson, Julieta Granada, Stacy Lewis, Gerina Piller og Yani Tseng.

Til þess að sjá stöðuna á Honda LPGA Thailand eftir 3. dag SMELLIÐ HÉR: