Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 21. 2019 | 01:00

LPGA: Green efst e. 1. dag KPMG Women´s PGA

Það er ástralski kylfingurinn Hannah Green sem er efst eftir 1. dag á KPMG Women´s PGA Championship  risamótinu, sem fram fer nú í ár 20.-23. júní í Chaska, Minnesota.

Green lék 1. hring á 4 undir pari, 68 glæsihöggum!!!

Öðru sætinu deila þær Mel Reid frá Englandi og Hyo Joo Kim frá S-Kóreu, 1 höggi á eftir forystukonunni þ.e. voru báðar á 69 höggum.

Leiðinlegt að sjá ekki Ólafíu Þórunni „okkar“ meðal keppenda!

Sjá má stöðuna á KPMG Womens PGA  risamótinu með því að SMELLA HÉR: