Ragnheiður Jónsdóttir | september. 1. 2019 | 22:00

LPGA: Green sigraði í Portland

Það var Hannah Green sem stóð uppi sem sigurvegari á Cambia Portland Classic LPGA mótinu.

Sigurskor Green var 21 undir pari, 267 högg (64 – 63 – 73 – 67).

Í 2. sæti varð bandaríski kylfingurinn Yealimi Noh, 1 höggi á eftir Green.

Ólafía Þórunn Kristinsdóttir, GR, tók þátt í mótinu en náði ekki niðurskurði.

Sjá má lokastöðuna á Cambia Portland Classic mótinu með því að SMELLA HÉR: