Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 22. 2019 | 07:00

LPGA: Henderson sigraði á LOTTE!!!

Kanadíski kylfingurinn, Brooke Henderson, sigraði á LOTTE Championship, sem fram fór í Ko Olina, í Oahu, Hawaii, dagana 17.-20. apríl 2019.

Sigurskor Henderson var 16 undir pari, 272 högg (65 – 68 – 69 – 70).

Þetta var sannfærandi sigur því Henderson átti heil 4 högg á næsta keppanda, Eun-Hee Ji, frá S-Kóreu, sem varð í 2. sæti á samtals 12 undir pari.

Þriðja sætinu deildu síðan þær Minjee Lee frá Ástralíu og Ariya Jutanugarn frá Thaílandi, báðar á 11 undir pari.

Til þess að sjá hápunkta lokahrings LOTTE Championship SMELLIÐ HÉR: 

Til þess að sjá lokastöðuna á LOTTE Championship SMELLIÐ HÉR: