Inbee Park
Ragnheiður Jónsdóttir | júlí. 29. 2012 | 15:22

LPGA: Inbee Park er sigurvegari Evian Masters 2012

Það er Inbee Park frá Suður-Kóreu, sem er sigurvegari Evian Masters mótsins, sem samþykkt hefir verið að verði risamót á næsta ári.

Innbee lék á samtals 17 undir pari, samtals 271 höggi (71 64 70 66).  Hún hlaut að sigurlaunum $ 487.500,- (u.þ.b. 61 milljón íslenskra króna).

Í 2. sæti voru þær Stacy Lewis frá Bandaríkjunum og Karrie Webb frá Ástralíu aðeins 1 höggi á eftir Park. Þær hlutu  $ 258.309,- (þ.e. 32,5 milljón).

Til þess að sjá úrslitin á Evian Masters mótinu SMELLIÐ HÉR: