Ragnheiður Jónsdóttir | nóvember. 23. 2020 | 20:00

LPGA: Kim sigraði á Pelican mótinu

Það var Sei Young Kim frá S-Kóreu, sem bar sigur úr býtum á móti vikunnar á LPGA mótaröðinni: Pelican Women´s Championship.

Mótið fór fram dagana 19.-22. nóvember 2020 í Belleair, Flórída.

Sigurskor Kim var 14 undir pari, 266 högg (67 – 65 – 64 – 70).

Hún átti heil 3 högg á Ally MacDonald, sem varð í 2. sæti á samtals 11 undir pari.

Enski kylfingurinn Stephanie Meadow varð í 3. sæti á samtals 9 undir pari.

Sigurtékki Kim var $ 225.000,-

Sjá má lokastöðuna á Pelican Women´s Championship með því að SMELLA HÉR: