Ragnheiður Jónsdóttir | ágúst. 24. 2019 | 22:00

LPGA: Ko og Broch Larsen í forystu á CP

Það eru þær Jin Young Ko frá S-Kóreu og hin danska Nicole Broch Larsen, sem leiða á LPGA móti vikunnar CP Women´s Open.

Báðar hafa þær Ko og Broch Larsen spilað á samtals 18 undir pari, hvor.

Heimakonan og kanadíska golfstjarnan Brooke Henderson er 2 höggum á eftir, á samtals 16 undir pari.

Mótið fer fram dagana 22.-25. ágúst 2019 í Aurora, Kanada og lýkur á morgun.

Sjá má stöðuna að öðru leyti á CP Women´s Open með því að SMELLA HÉR: