Ragnheiður Jónsdóttir | febrúar. 24. 2019 | 01:00

LPGA: Lee og Yang enn efstar e. 3. dag Honda Classic

Þær Amy Yang og Minjee Lee halda forystunni á Honda LPGA Classic fyrir lokahringinn; eru hnífjafnar.

Báðar hafa þær Lee og Yang spilað á 15 undir pari, 201 höggi, Lee (65 69 67) og Yang (68 66 66).

Eftir 3. hringinn sagði Yang, sem tvívegis hefir sigrað áður á Honda LPGA Classic: „...ég sló mikið af sólíd höggum og átti nokkur góð pútt. Mér líður vel. Ég spilaði vel í dag.“

Lee, sem sigraði síðast á LPGA Volvik Championship, sagði eftir 3. hringinn: „Mér finnst ég ansi sólíd. Ég hef sett niður fleiri pútt í þessari viku en í hinum tveimur vikunum sem ég hef spilað, þannig að það er gott merki. Ég hef verið að slá sólíd, þannig að það er líka næs.“

Sjá má stöðuna á Honda LPGA Classic með því að SMELLA HÉR: 

Aðalmyndagluggi: Amy Yang (t.v.) og Minjee Lee (t.h).