Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 29. 2019 | 10:00

LPGA: Lee sigraði í LA

Það var hin ástralska Minjee Lee, sem stóð uppi sem sigurvegari á Hugel – Air Premia LA Open, sem fram fór 25.-28. apríl 2019.

Sigurskor Lee var 14 undir pari, 270 högg (66 – 69 – 67 – 68). Þetta er 5. titill Lee á LPGA.

Lee átti heil 4 högg á þá sem varð í 2. sæti; Sei Young Kim frá S-Kóreu, en hún lék á samtals 10 undir pari (70 – 70 – 68 – 66).

Bandarísku kylfingarnir Annie Park og Morgan Pressel deildu síðan 3. sætinu á samtals 9 undir pari, hvor.

Til þess að sjá lokastöðuna á Hugel – Air Premia LA Open SMELLIÐ HÉR: