Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 29. 2019 | 22:30

LPGA: Park og Suwannapura efstar í hálfleik Kia Classic

Sung Hyun Park frá Suður-Kóreu og Thidapa Suwannapura frá Thaílandi eru efstar og jafnar á móti vikunnar á LPGA, Kia Classic.

Báðar hafa þær spilað á 10 undir pari, 134 höggum (68 66).

Þriðja sætinu deila þær Chella Choi og fyrrum nr. 1 á Rolex-heimslistanum, Inbee Park, báðar 1 höggi á eftir þ.e. á samtals 9 undir pari.

Athygli vekur að í 3 af 4 efstu sætinum í mótinu eru kylfingar frá S-Kóreu! Reyndar eru allir 4 efstu kylfingarnir frá Asíu það er ekki fyrr en í 5. sæti sem finnast kylfingar frá öðrum heimsálfum, þ.e. Minjee Lee frá Ástralíu og Marijo Uribe frá Kólombíu deila 5. sætinu.

Mótið fer fram í Carlsbad, Kaliforníu, dagana 28.-31. mars 2019.

Sjá má stöðuna á Kia Classic með því að SMELLA HÉR: