Ragnheiður Jónsdóttir | desember. 7. 2020 | 18:00

LPGA: Stanford sigraði á Volunteers

Það var Angela Stanford, sem sigraði á Volunteers of America Classic mótinu, sem var mót vikunnar á LPGA, dagana 2. – 6. desember 2020.

Mótið fór fram á the Old American Golf Club ií The Colony, Texas.

Þarna var hin 43 ára Stanford á heimavelli og sigraði að foreldrum sínum aðsjáandi.

Sigurskor Stanford var samtals 7 undir pari (71 69 70 67) og sigurtékkinn upp á $262,500.

Þrír kylfingar deildu 2. sætinu; landa Stanford, Yealimi Noh; og Inbee Park og So Yeon Riu frá S-Kóreu.

Sjá má lokastöðuna á Volunteers og America Classic með því að SMELLA HÉR: