Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 1. 2019 | 17:00

LPGA: Wie dró sig úr HSBC vegna meiðsla

Michelle Wie er í enn eitt skiptið meidd.

Og það aðeins eftir að hafa hafið golfmót í 2. skipti frá uppskurði í október.

Wie spilaði fyrstu 14 holurnar í móti vikunnar á LPGA, HSBC Women’s World Championship, á 10 yfir pari, áður en hún dró sig úr mótinu, og bar fyrir sig að sig að hún væri með verk í hægri hendinni.

Wie sneri aftur til keppni í síðustu viku en þá tók hún þátt í LPGA Thaíland og lauk keppni í 23. sæti.

Wie var að verja eina titil sinn frá árinu 2018 er hún gekk af velli haldandi um hönd sér og úlnlið.

Michelle Wie handarbraut sig og hlaut áverka á hnakka í bílslysi fyrir 2 árum, skv. LPGA.com