Ragnheiður Jónsdóttir | október. 9. 2011 | 12:45

LPGA: Yani Tseng sigraði á Hana Bank mótinu í Incheon

Yani Tseng, sýndi í dag og sannaði af hverju hún er nr. 1 í heimi. Þessi 22 ára stúlka sem deildi ásamt þeirri sem átti titil að verja, heimakonunni Na Yeon Choi, 2. sætinu á eftir óþekktari kylfing á heimsmælikvarða Soo-Jin Yang í gær, sannaði í dag hver er best í heimi.  Hin högglanga Yani sýndi klærnar, kom inn á 67 höggum 1 höggi betur en Na Yeon, sem varð í 2. sæti á 68 höggum. Þetta er 6. sigur Yani á LPGA í ár og ber hún höfuð og herðar hinar á túrnum – virðist á stundum ósigrandi.

Samtals var Yani á -14 undir pari, spilaði hringina 3 á 202 höggum (65 70 67) og tók heim með sér, eins og svo oft áður verðlaunatékkinn fyrir 1. sætið upp á $270.000,- (ísl. kr. 31.860.000,-) þ.e. tæpar 32 milljónir íslenskra króna.

Na Yeon Choi lauk keppni á -13 undir pari, 203 höggum (67 68 68) og fékk líka rífleg verðlaun $ 168.366 tæpar 20 milljónir íslenskra króna.

Þriðja sætinu deildu  síðan bandaríski Solheim Cup keppandinn Brittany Lincicome spilaði á samtals – 11 undir pari, 205 höggum (71 68 66); sú sem leiddi í gær, nr. 2 í Kóreu, Soo-Jin Yang (69 65 71) og landa hennar Jimin Kang (68 69 68)  og hlutu þær stöllur tékk upp á $ 97.556,- (ísl. kr. 11.5 milljónir) hver, frá Hana Bank, sem styrkti mótið.

Það vekur nokkra athygli að af 12 efstu stúlkum eru 10 heimakonur, þ.e. kylfingar frá Suður-Kóreu, en væntanlega eru þær öllum staðháttum kunnugar í Sky 72 Golf Club og Ocean golfvelli klúbbsins í Incheon í Suður-Kóreu.

Til þess að sjá úrslitin á Hana Bank, smellið HÉR: