Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 18. 2019 | 12:00

Morðingi Celiu Barquin Arozamena játar

Í fyrra haust bárust þau sorgartíðindi að einn efnilegasti kvenkylfingur Spánar, Celia Barquin Arozamena, hefði verið myrt þar sem hún var við æfingar á golfvelli við háskóla í Iowa, þar sem hún var við það að útskrifast.

Celia Barquin Arozamena

Hinn 22 ára smákrimmi, Collin Daniel Richards, var ákærður fyrir að hafa að morgni hins 17. september 2018 orðið Celiu að bana á Coldwater Golf Links í Ames, Iowa.

Richards var fljótlega handtekinn og hefir setið í fangelsi síðan.

Hann hefir nú ritað dómara máls síns, sem tekið verður fyrir næsta haust, handskrifað bréf, þar sem hann gengst við verknaðinum.

Blaðamenn Des Moines Register birtu bréf hans, sem sjá má hér að neðan:

Dómarinn í málinu, Bethany Currie hefir boðað lögmenn Richards á sinn fund til að ræða bréfið og ákveða hvort rétta þurfi sérstaklega um þennan þátt málsins, en sagðist annars ekki ætla að tjá sig meira um málið.