Ragnheiður Jónsdóttir | júní. 23. 2019 | 18:00

Mótaröð þeirra bestu 2019 (3): Saga og Rúnar Íslandsmeistarar í holukeppni

Það eru Saga Traustadóttir, GR og Rúnar Arnórsson, GK, sem eru Íslandsmeistarar í holukeppni 2019.

Þau stóðu uppi sem sigurvegarar á Securitas-mótinu sem lauk í dag á Garðavelli á Akranesi. Íslandsmótið í holukeppni hófst á föstudaginn en alls voru 32 karlar og 23 konur sem tóku þátt.

Saga sigraði Ragnhildi Kristinsdóttur úr GR í úrslitaleiknum en úrslitin réðust á 19. holu í bráðabana. Þar fékk Saga fugl og landaði hún sínum fyrsta Íslandsmeistartitli í holukeppni á Mótaröð þeirra bestu. Hulda Clara Gestsdóttir sigraði Amöndu Guðrúnu Bjarnadóttur úr GHD í leiknum um þriðja sætið 5/4.

Rúnar Arnórsson, GK sigraði Ólaf Björn Loftsson úr GKG í úrslitaleiknum 3/2 en Rúnar sigraði á þessu móti í fyrra og tókst því að verja titil sinn. Jóhannes Guðmundsson úr GR lagði Arnór Inga Finnbjörnsson úr GR í leiknum um þriðja sætið.