Ragnheiður Jónsdóttir | mars. 13. 2014 | 05:00

Munaði engu að aftur kæmi til deilna Tiger og Sergio

Það munaði engu að að allt hefði að nýju farið í háa loft milli nr. 1 á heimslistanum, Tiger Woods og nr. 10

á heimslistanum Sergio García á 1. hring WGC Cadillac Championship í Doral í síðustu viku ….. og það fyrir

algera slysni.  

Tiger, sem var í ráshóp með Adam Scott og Henrik Stenson hélt ranglega að allir í ráshóp Sergio, sem

lék á undan þeim, hefðu farið af flöt á stuttu par-4 16. brautinni á Bláa Skrímslinu.

Í raun var Sergio enn á flöt að bíða úrskurðar dómara vinstra megin á flöt.

Tiger sló dræv sitt, en sem betur fer fyrir þá sem kjósa að allt fari friðsamlega fram á golfvöllum, hitti hann boltann

ekki almennilega og var ekki nálægt því að slá inn á flöt. Það er ekki sökum að spyrja hvað gerst hefði Tiger

hefði slegið á Sergio – Spánverjinn skapheiti hefði það sko ekki látið óátalið!

Scott og Stenson, sem virtust átta sig á hvað væri að gerast héldu að sér að slá og notuðu tímann til þess að grínast

góðlátlega í  Tiger um hvað gæti hafa gerst….  Já, þetta var einfaldlega ekki mót Tiger!