Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 28. 2019 | 19:00

Na gaf kylfusveini sínum bíl

Kevin Na gaf kylfusveini sínum Dodge Charger 1973 bíl eftir sigurinn góða á Charles Schwab Challenge.

Frábær lokahringur Na upp á 66 högg færði honum 3. sigurinn á atvinnumannsferlinum í Colonial Country Club.

Og Na var ekki seinn á sér að gefa kylfusveini sínum gjöf fyrir þátttöku hans í sigrinum.

Meðal verðlauna á Charles Schwab var m.a. þessi gamli 46 ára glæsibíll og þegar sigurinn var í höfn hrópaði Na upp yfir sig til kylfusveins síns Kenny Harms: „Þetta er bíllinn þinn.“

Skemmtileg stund á 18. flöt hjá Na og kylfusveini hans!!!