Ragnheiður Jónsdóttir | apríl. 24. 2012 | 18:00

Nökkvi og Steinn Baugur urðu T-18 á PGA 4Ball Club Trophy 2012

Bræðurnir Nökkvi og Steinn Baugur Gunnarssynir, báðir í NK, luku í gær keppni á PGA 4Ball Club Trophy 2012 mótinu, sem fram fór í Belgíu.

Spilað var í  Royal Waterloo Golf Club í La Marache, Belgíu.  Royal Waterloo golfklúbburinn var stofnaður 1923 í Rhode-Saint-Genèse og völlurinn hannaður af hinum fræga breska golfvallarhönnuði Frederick Hawtree. Komast má á heimasíðu Royal Waterloo HÉR: 

Þátttakendur í mótinu voru 76 þ.e. 38 tveggja manna lið, en fyrirkomulag mótsins var fjórbolti. Nökkvi og Steinn Baugur urðu T-18, þ.e. deildu 18. sætinu með 4 öðrum, en þeir spiluðu saman á +3 yfir pari, 75 höggum.

Nökkva og Steini Baug var boðið í mótið, þar sem þeir voru staddir á námskeiði á vegum Jim Hardy og Chris O’Connell, hjá Plane Truth Golf Instructions, en Nökkvi hefir um langt skeið tileinkað sér golfkennsluaðferðir þeirra og nú er Steinn Baugur að taka fyrra stigið í golfkennslunni. Sjá um Plane Truth m.a. í skemmtilegu viðtali sem Golf 1 tók við Nökkva s.l. haust HÉR: 

Til þess að sjá úrslitin á  PGA 4Ball Club Trophy 2012 mótinu, smellið HÉR: