Ragnheiður Jónsdóttir | maí. 22. 2012 | 19:00

Nýju strákarnir á Evróputúrnum 2012 (11. grein af 21): Warren Abery og Lloyd Kennedy

Í dag verður fram haldið kynningu á nýju strákunum á Evróputúrnum 2012, sem hlutu kortið sitt á lokaúrtökumóti Q-school túrsins í Girona, á Spáni 10.-15. desember á s.l. ári.

Í kvöld verða Warren Abery og Lloyd Kennedy kynntir.

Byrjum á Lloyd Kennedy, sem varð í 17. sæti í Q-school.

Lloyd Kennedy.

Lloyd Kennedy fæddist í Chelmsford á Englandi 4. apríl 1985 og er því 27 ára. Hann er í golfklúbbi Chelmsford. Fyrir utan golfið hefir hann áhuga á fótbolta.

Kennedy gerðist atvinnumaður 2006 og hefir undanfarin 6 ár farið margar ferðir í Q-school, en auk ferðarinnar góðu 2011 tók hann þátt 2005, 2006, 2007, 2008 og 2009.

Lloyd Kennedy lýsti ferðinni í Q-school 2011 sem besta augnabliki ferils síns þ.e. eftir að hann var búinn að tryggja sér 17. kortið sem í boði var.

Kennedy gerðist s.s. áður segir atvinnumaður 19 ára, þ.e. 8 árum eftir að hann byrjaði í golfi og 5 árum eftir að hann „fór að spila af einhverri alvöru.“  Lloyd Kennedy spilaði á Europro Tour og spilaði síðan 3 keppnistímabil á Challenge Tour áður en hann komst í 1. deildina. Hann varð í 49. sæti  á stigalistanum 2009 og í 57. sæti 2010, en tókst að tryggja sér sæti á lokamóti Challenge Tour,  Apulia Domenico Grand Final, eftir að hafa orðið í 45. stigalistans með nokkrum góðum niðurstöðum á túrnum, þ.á.m. 3. sætinu á Fred Olsen Challenge de España. Lloyd Kennedy telur að reynslan á Challenge Tour eigi eftir að nýtast honum vel á Evróputúrnum. Áhugamannsferill hans er fremur stuttur en hann tók m.a. þátt í English Boys Home Internationals og stóð sig vel í mótum á heimaslóðum. Kennedy segir mömmu sína hafa haft mest áhrif á feril sinn, þar sem hún veitti honum tækifæri á að stunda íþróttina sem hann elskar, golfið og eins var Tiger Woods átrúnaðargoð hans þegar hann var lítill.

Warren Abery varð í 16. sæti í Q-school.

Warren Abery.

Warren Abery fæddist 28. júní 1973 í Durban, Suður-Afríku og er því 38 ára. Abery gerðist atvinnumaður 1997. Auk Q-school þátttöku 2011 tók Abery þátt í Q-school 1998, 1999 og 2005.

Abery varð að fá fugl á 108. og lokaholu á Q-school 2005 til að tryggja sér kortið á Evróputúrnum, hann átti frábært aðhögg þar sem hann setti boltann 2 metra frá pinna og setti síðan púttið niður undir ofurpressu. Hann varð í 165. sæti á stigalista Evrópumótaraðarinnar 2006 og hélt því ekki kortinu 2007.  Hann hefir aldrei verið með golfþjálfara og kýs „að finna út úr hlutunum sjálfur“ jafnvel þegar hann fékk verki í mjóbakið, sem hrjáði hann í 2 ár og stefndi öllum ferlinum í hættu. Nú er hann sem betur fer búinn að ná sér og eftir að hann hlaut 16. kortið í Q-school 2011 spilar hann nú á Evróputúrnum. Kannski vert að geta að hann spilaði sem áhugamaður í Suður-Afríku og keppti m.a. í Eisenhower Trophy fyrir land sitt jafnframt því sem hann vann  South African Amateur Championship árið 1995. Eins hefir Abery spilað á Sólskinstúrnum með góðum árangri.  Meðal áhugamála Warren Abery fyrir utan golf eru rugby, cricket og veiðar. Warren Abery er sem stendur nr. 565 á heimslistanum.

Sjá má úrslit í lokaúrtökumóti Q-school Evrópumótaraðarinnar 2011 HÉR: 

Heimild: europeantour.com